Leita í fréttum mbl.is
Embla

Færsluflokkur: Lífstíll

BJÓR GETUR KOMIÐ Í VEG FYRIR BEINÞYNNINGU..

BJÓR  GETUR  KOMIÐ Í VEG  FYRIR  AÐ BEIN  VERÐI  BROTHÆTT.

Beer could stop bones going brittle

By Ben Leach

Published: 8:23AM BST 12 Aug 2009 

http://www.telegraph.co.uk/health/healthnews/6014310/Beer-could-stop-bones-going-brittle.html 

Drinking beer regularly could stop bones from going brittle. 

Að drekka bjór reglulega gæti komið í veg fyrir að  bein verði brothætt, samkvæmt því sem Spænskir vísindamenn segja..

Í rannsóknar niðurstöðunni segir að konur sem drekki bjór  reglulega, hafi sterkari bein, sem geri það að verkum að þær þjást síður af  beinþynningu.

Það er talið að hátt hlutfall af silicon í bjór hægi á  þynningunni, sem að leiðir til brota og auki nýmyndun beina, segir í skýrslu   tímaritsins Nutrition.

 

Bjór inniheldur líka mikið af plöntu estrogen (phytoestrogens),sem er jurta útgáfan af oestrogen, sem heldur beinum heilbrigðum.

Bein eru mynduð úr trefja  möskvum, steinefnum, blóðæðum og merg, og heilbrigð bein eru þéttari í sér með  minna bili á milli þessarra þátta.

Rannsakendurnir spurðu um  1.700 heilbrigðar konur með meðalaldurinn 48, um þeirra drykkju venjur

 

Þær voru síðan látnar  fara í ómskoðun með hendurnar, sem sýndi að bein þeirra sem bjórinn drukku voru  þéttari í sér..

Hendur kvennanna voru  valdar vegna þess að beinin í fingrunum er meðal þess sem sýnir fyrsu merki um  beinþynningu, sjúkdóms í beinum sem leiðir til aukinnar hættu á beinbrotum..

Þær sem fengu sér minna  en 0,57 l á dag, sem að vísindamennirnir skilgreindu létta bjór drykkju, komueins vel út og þær sem voru í hóflega hópnum, sem gefur til kynna að jafnvel  mjög lítið magn geti bætt heilbrigði beinanna.

 

Spönsku rannsakendurnir sögðu:

"Silicon spilar stórt hlutverk í beinmyndun.

Fullyrt hefur verið að bjór sé  ein mikilvægasta uppspretta silicon´s  í  vestrænu matarræði.  Þrjár miljónir Bretaþjáist af beinþynningu.

Það er algengast hjá konum á breytingarskeiðinu.

 

 LYF  VIÐ  MELINGARTRUFLUNUM  TENGD  VIÐ  SJÚKDÓM SEM  EYKUR  BEINBROT.

Indigestion drugs linked to brittle bone disease

Lyfsem ætluð eru til meðhöndlunar við meltingartruflunum og bakflæði geta aukiðhættu á sjúkdómi sem veldur beinbrotum. (beinþynningu)

BySarah Knapton 
Published: 7:56AM BST 16 Aug 2008

http://www.telegraph.co.uk/news/uknews/2567545/Indigestion-drugs-linked-to-brittle-bone-disease.html

 Stock Photo - broken bone. fotosearch - search stock photos, pictures, images, and photo clipart

Milljónir manns taka lyf  sem fást bæði uppáskrifuð og beint yfir borðið í litlum skömmtum.

En Canadísk rannsókn  hefur leitt í ljós að þeir sem taka þau reglulega  í 5 ár voru í 44 % meiri áhættu á mjaðma  brotum.

Lyfið vinnur þannig að það blokkerar virkni frumna sem framleiða  magasýru og er ekki mælt með að taka þau yfir langan tíma.

 

Þó að það sé óklárt  hvernig lyfið veldur skemmdum, þá telja vísindamenn við Háskólann í Manitoba aðþað geti stöðvað líkamann í því að taka upp kalk, sem þarf til að mynda sterk  bein.

 

Beinþynning, eða brothætt  bein, hrjá um þrjár milljónir Breta.

Ein af þrem konum og einum af tólf  karlmönnum,  þróa þennan þreytandi   beinsjúkdóm einhvern tíma á æfinni.

Læknar fullyrða að þessi lyf séu oft  uppáskrifuð í of miklum mæli en ráðleggja fólki að panikka ekki vegna þessarra  uppgötvana..

 

Professor Chris  Hawley,  kosinn forseti British  Society of Gastroenterology sagði:

,, Það eru til mjög  örugg lyf, en í sumum tilfellum þá getur verið að þau séu

of-uppáskrifuð, eins  og til dæmis við minni háttar meltingartruflunum.“

Og Professor Ingvar Bjarnason sérfræðingur í meltingarsjúkdómum við Kings College London,bætti við:

 ,, Áhættan af beinbrotum  á meðal þeirra sem eru á lyfjunum er samt sem áður mjög lítil og ég tel að  ávinningurinn sé meiri en áhættan af þeim.“

Snemma á þessu ári, birtu læknar við Manchester RoyalInfirmary   niðurstöður rannsókna sem  sýndu að lyfin auki áhættuna á að fá ofur bakteríuna Clostridium difficile.

 ÞÝÐANDI AGNÝ.

Smá viðbót....það sem maður setur hér á stjórnborðið kemur með réttu bili á milli orðanna en svo þegar það er komið inn á forsíðuna..þá mætti sko halda að maður hafi tapað allri íslensku kunnáttu niður...Hvernig í fjáranum sem stendur á því..Þannig að þegar ég ætla að laga það þá er ekkert sem þarf að laga á stjórnborðinu...Þetta finnst mér þokkalega pirrandi.. 


HJÁLP..4 kettlinga vantar heimili..2 strákar og 2 stelpur..Myndir

100_2607.jpg 100_2605.jpg 100_2608.jpg

 

Þau fæddust 15 maí og eru algjörar dúllur...Öll orðin kassavön og éta og drekka þó þeim þyki enn góður sopinn hjá mömmu.. Mala og kurra og mjög kelin.. Rúfus heitir sá rauði ..Alexander er mikið hvítur og gra/svart bröndóttur en stelpurnar eru þrílitar og heita Doppa og Loppa...

 En málið er að það er sko von á fleiri kettlingum næstu daga og miðað við að Sóta virðist sko vera að springa þá er alveg pottþétt að það koma fleiri en 4 stk og síðast átti hún 6...

Þannig...en ok..veit að ég þarf að vara að taka læðurnar úr sambandi og pabbann líka....en þessi blöndun virðist samt gefa einstaklega geðgóða, blíða og kelna ketti og mannelskandi.. 

þEIR SEM HAFA ÁHUGA SENDIÐ MÉR EMAIL EÐA SKRIFIÐ HÉR... 

100_2669.jpg

 

100_2609.jpg

100_2611.jpg 100_2612.jpg 100_2613.jpg 100_2615.jpg 100_2685.jpg 100_2686.jpg 100_2687.jpg 100_2688.jpg 100_2689.jpg 100_2679.jpg 100_2681.jpg 100_2682.jpg 100_2673.jpg 100_2674.jpg img_0708.jpg 100_2610.jpg

KETTLINGAR FÆDDIR 15 MAÍ 2009 Myndir ef einhvern langar í kettling...

Jæja þá hefur enn einu sinni fjölgað í katta fjölskyldunni hér...Þær eru að þessu til skiftis en sem betur fer komu bara 4 hjá Blíðu ..hún virðist halda sig við þá tölu en hún eignaðist 4 stk 2 ágúst 2008..

Sóta eignaðist 5 stk 19 og 20 júlí 2008 og svo aftur 23 og 24 nóv 2008 heil 6 stk...en allur þessi hópur eignuðust ný heimili og vona ég bara að allir séu sáttir...

Hér sjáið þið allavega myndir af nýjustu meðlimunum... en það eru 2 stelpur sem eru svona skrautlega litar, en hitt 2 strákar og sonur minn er búinn að gefa þeim nöfn og heitir sá gulbröndótti Rúfus og sá sem er mikið hvítur og svar/grábröndóttur heitir Alexander...

Hér er fyrri daman að koma í heiminn... 

IMG_0586

 En erum ekki alveg með það á tæru hvað við eigum að kalla dömurnar en aðra vill sonur minn kalla Loppu því hún er með stórar loppur og treður þeim í fésið á manni..

 Hina vill hann kalla Doppu en hún er með svartar doppur á nebbanum..

 

 

 

 

                                                                Hér er svo Rúfus kominn í heiminn  

IMG_0587 IMG_0588

 

 

 

IMG_0589

 

IMG_0593

 

 


 

 

 


 

 

 

 

 

 Hér er svo seinni daman komin í heiminn.

IMG_0599

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér hefur svo Alexander bæst í hópinn..þreytt mamma þarna..

 

IMG_0600

 

Læðurnar eru algjörar kelurófur og byrjuðu að mala um leið og þær opnuðu augun, strákarnir eru enn aðeins tilbaka en eru samt byrjaðir að mala og öll blíð en það er þá bara eins og hefur verið  í öll hin skiftin sem læðurnar hafa gotið ..

 

 

 

 

Hér verið að fá sér mjólkurdreitil.. 

IMG_0602

Allir byrjaðir að mala svona snemma og mjög mannelsk og vilja láta vera með sig en enn sem komið er þá eru það dömurnar sem hafa fengið meiri athygli því þær eru kröfuharðari Wink..

 

 

 

 

 

 Blíða heldur vel utan um börnin sín..

IMG_0604

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér þurfti mamman að skreppa frá og þau eru

dags gömul..

IMG_0610
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 HÉR ERU ÞAU FARIN AÐ STÆKKA..
 
IMG_0722
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
IMG_0729
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
HÉR ER HÚN LOPPA KELURÓFA 
                                                                                                          
IMG_0732 IMG_0736 IMG_0745 IMG_0754 IMG_0755 IMG_0766 IMG_0767 IMG_0768 IMG_0769 IMG_0770 100_2356 100_2358 100_2362 100_2363 100_2369 100_2357

ÞETTA ER SKO ALTÆKUR KÆRLEIKUR! Ég fæ tár í augun.Video

Ég varð bara að að setja þetta video hér. Það segir sko meira en nokkur orð um að kærleikur á sér engin landamæri og ekki bundinn við neitt eða heftur af neinu, nema þá helst af fordómum okkar mann"skepnunnar".

Þetta myndbrot hér af dádýrskálfi og kettlingi segir allt sem segja þarf um það.

Njótið velHeart

 

 

 


HÁRGREIÐSLUFÓLK Í MIKILLI KRABBAMEINS ÁHÆTTU VEGNA HÁRLITUNAR EFNA.

hair dye

Hárgreiðslufólk og rakarar gætu verið í aukinni  hættu á að fá krabbamein, segja rannsóknaraðilar. Við það að koma í snertingu við hárliti  eykur hættuna á vissri tegund krabbameins, sérstaklega blöðru krabbameins, segja þeir. Dökkur háralitur hefur mestu áhættuna þó að notkun sumra hárlitunar innihaldsefnanna hafi verið hætt um 1970.

Í hættu: Hárgreiðslufólk eru í aukinni hættu á að fá krabbamein, fullyrða rannsakendurnir. Jákvæðar krabbameins niðustöður hjá rottum, leiddu til þess að þær voru afturkallaðar, segir í síðustu skýrslu vinnuhópsins hjá International Agency for Research on Cancer.

Hópurinn skoðaði líka persónulega notkun háralits en ákvað að það væri "ófullnægjndi“ sannanir til þess að ákvarða hvort eða ef það að lita hár sitt myndi auka hættu á krabbameini.

.(Innskot Agný..Ef það að vinna með hárlitunarefni er nóg til þess að auka hættu á krabbameini þá hlýtur það að bera efnin í hársvörðinn að vera enn meiri áhætta..Húðin er jú stærsta öndunarfæri líkamans og þar sem að húðin tekur hormóna, nicotin,  ritalinúr plástrum ( já það eru til ritalin plástrar) upp,  þá er það augljóst að allt sem við smyrjum og berum á skrokkskjóðuna fer inn í gegnum húðina og ut í blóðrásina og sum efni hraðar en önnur) 

Dr Robert Baan og samstarfsmenn frá stofnuninni, sem staðsett er í Lyon Frakklandi, sagði að margar rannsóknir í sambandi við krabbamein hafi verið gerðar á hárgreiðslufólki, snyrtifræðingum og rökurum síðan síðasta mat hafi verið gert 1993.

 "Lítil,  en augljós  hætta á blöðru krabbameini hjá karlkyns hárskerum og rökurum „ segir í skýrslu þeirra í The Lancet Oncology."   "Vegna lítil stuðnings við þessar uppgötvanir,  útaf tímalegnd eða tímabils sem viðkomandi varð fyrir efnunum, þá taldi vinnuhópurinn þessi gögn ónóg sönnunargögn fyrir krabbameinsvald og breytti lýsingunni í "mögulegur krabbameinsvaldur hjá fólki.“

Hárlitunar iðnaðurinn segir að litir séu meðal þeirra efna sé mest rannsakaða efnið sem er á markaðinum.. (Innskot Agný..Jamm..og þessu liði finnst greinilega okey að bera ammoníak í hársvörðinn...je jú ræt..það er það sem veldur sviðanum...allavega svíður mig ekki undan háralit sem ekki inniheldur ammoníak...) Þýðandi Agný.

http://www.mirror.co.uk/life-style/fashion-beauty/fashion/2008/06/05/does-hair-dye-increase-cancer-risk-115875-20595801/

http://www.detoxamin.com/heavy_metals/hairdressers_cancer_risk.html 

http://www.healthtruthrevealed.com/articles/101400801/article  

Vinsæl shampoo innihalda eitruð efni sem taugaskaði er tengdur við.

http://agny.blog.is/blog/agny/entry/341864


LÍFSINS LÆRDÓMUR..

 Ég er þakklát/ur öllumsem hafa komið fram við mig af hörku,  þeir hafa kennt mér að vera mildur og hugulsamur.

Sem hafa vanmetið mig og talið lítilsvirði, þeir hafa kennt mér að standa með sjálfum mér.

Sem töldu mig einskis verðugan, þeir hafa neytt mig til þess að leita að fjársjóðnum innra með mér.

Sem komu fram við mig á ólöglegan hátt, þeir hafa kennt mér að vera einlægur.

sem aldrei hafa sýnt mér væntumþykju, þeir hafa sýnt mér mikilvægi kærleikans.

Sem öfunduðu mig, börðust við mig og særðu,þeir hafa kennt mér sjálfs gagnrýni og varkárni.

Sem aldrei hafa veitt mér neina athygli, þeir hafa kennt mér að  koma fram við alla án fordóma.

Sem sært hafa mína virðingu, þeir hafa kennt mér að veita fyrirgefningu.

Sem aldrei tóku eftir því að ég væri hjálpar þurfi,þeir hafa kennt mér að leita hjálpar og stuðnings.

Sem hafa yfirgefið mig og skilið eftir einan,þeir hafa kennt mér hvað raunveruleg vinátta er. 

Sem hafa hindrað mig og bælt,þeir hafa kennt mér að verja sjálfan mig.

Sem hafa valdið mér sársauka og sorg, þeir hafa kennt mér að þekkja andstæðu þjáningar, huggunar.

Sem hafa tekið þátt í þessu, hafa gefið  lífi mínu merkingu og tilgang.

Ég ber þakklæti til hvers og eins ykkar. 

Þið eruð ástæðan fyrir því hvernig  og hversvegna ég hef lært svona mikið, og kennt mér að skilja hvað   er mikilvægt fyrir mig í dag og að vera fær um að gefa það allt frá mér!


BLAND Í POKA...

xmas_pud_318615 Jæja ...þá eru þessi blessuð jól loksins komin sem maður kanski bæði hlakkar til og kvíðir fyrir.. Akkurat svona "bland í poka"...Alltaf ætlar maður að vera búin að gera x þetta og x hitt nógu tímanlega fyrir "þessi" jól...

Hlakkar til að setjast loks niður og snæða góðan mat með fjölskyldu og vinum..og dýrunum sínum.. Svo að gefa og þiggja hinar ýmsu gjafir, sem þurfa ekki endilega að vera x tuga/hundraða þúsund kalla virði nú eða x miljóna eða x miljarða eins og hjá vissum "útrásar" gaurum...(giljagaurum)...En "mín" jólastemming er, að þegar búið er að gefa og þiggja, að setjast með bók, konfekt og kaffi (og sígó...suss ekki segja frá..) og flatmaga í sófanum...hafa kveikt á kertunum og reykelsi...En þessi jól get ég ekki flatmagað..rifbeinadraslið sér fyrir því

funny-santa Kvíðir fyrir að vera nú ekki búinn að öllu sem maður setti á "gera þetta" listann...Ja ..ég kláraði allavega ekki minn..ég get að vísu notað rifbeinsbrot sem orsakavald í þetta sinnGetLost...Ég er loks farin að skilja það að ég á ekki að vera að príla í stigum rétt fyrir jól...En ég verð að játa að verkirnir eru það þokkalegir að ég vildi alveg vera laus við svoleiðis afsökun .....Það er allavega nokkuð pottþétt að ég dansa ekki inn í nýja árið um þessi áramót..og .ég elska að dansa.Crying. Verð líka að afþakka faðmlög og knús...ég sem er svo mikið fyrir knús..ja það verður þá að fara  mjöööög varlega að mér..ekki nein kraftajötna faðmlög ...sussu nei...

dreamsComeTrue30 Jamm...svo ætlar maður líka að vera búinn að kaupa gjafirnar löngu fyrir jól...réttast er að kaupa engar gjafir fyrr en eftir áramót á útsölunum...og halda þá svona "gefa og þiggja" dag.... Gott tilefni líka til að hitta vini og ættingja oftar...Jólin geta þá loks fengið að vera svona hátíð eins og alltaf er verið að syngja og segja.." kærleiks- og friðar jól"...

Ég læt hér fylgja svona hin og þessi heilræði, orðatiltæki, hugleiðingar.. brandara.. svona eitthvað andlegt "bland í poka" ....það verður að hafa balance í því sem maður treður í kroppinn af góðgæti...verður líka að næra sálartetrið....

DÝRMÆTUSTU  GJAFIRNAR  SEM  ÞÚ  GETUR  GEFIР ÁSTVINUM ÞÍNUM  ERU FALLEG  ORÐ  OG GJÖRÐIR,  SAMÚÐ,  FYRIRGEFNING,  ÞAKKLÆTI,  SKILNINGUR  OG  VIÐURKENNING...

LEIÐIN  AР VISKUNNI  OG  HAMINGJUNNI  ER  INN´ Á  VIÐ. GERÐU  ÞAÐ EKKI AР MARKMIÐI  AР VERÐA  HAMINGJUSAMUR,  VERTU  HELDUR  HAMINGJUSAMUR  FYRIR  MARKMIÐIN..

AUGNABLIKIР ER  ÞAР EINA  SEM  VIР EIGUM  MEР VISSU...

ÞÍN  ÆFI  ER  EITT  ANDARTAK , EITT  UNDURSAMLEGT  NÚ.  OG  ANDARTAKSINS  EILÍFT  LÍF  ÁTT ÞÚ..

EINA  GLEÐISTUNDIN  SEM  OKKUR  ER  ÖRUGGLEGA  GEFIN  ER HÉR  OG  NÚ,  ANDARTAKIР SEM  VIР HRÆRUMST  Í  HVERJU  SINNI..

ÁSTIN  VILL  FYRST  OG  FREMST  GLEÐJA  AÐRA,   EN  EIGINGIRNIN  VILL  FYRST  OG  FREMST  GLEÐJA  SJÁLFAN  SIG..

SÁ  SEM  EKKI  KANN  EÐA  GETUR  TEKIР Á  MÓTI  GJÖFUM  ÁSTARINNAR,  GETUR HELDUR  ALDREI  LÆRT AР ELSKA.

BREYTTU  SÁRSAUKANUM  Í  SIGUR  OG  MISTÖKUNUM  Í  MÁTT..

BÆNIN  ER  ANDARDRÁTTUR SÁLARINNAR..
HVAÐ EINA  SEM  VERT  ER  AР SKILJA,  ER  Í  FYRSTU  SEM  RÁÐGÁTA.
AР LEITA  VISKUNNAR  ER  VITURLEGT,  AÐ HALDA  AР MAÐUR  HAFI  ÖÐLAST  HANA  ER  HEIMSKULEGT..
VIР PLÖNTUM  EKKI  TRJÁMM FYRIR  OKKUR HELDUR  FYRIR  BÖRNIN  OKKAR..
EF  ÞÚ  LEYFIR  EINHVERJUM  AР REITA  ÞIG  TIL  REIÐI,  HEFUR  ÞÚ  LEYFT  HONUM  AР SIGRA ÞIG..
HVORUGT  ER VARANLEGT,  AÐ TAKAST  OG  MISTAKAST.
ÓTTASTU  EKKI  ÓTTANN -- EN  HLÝDDU  HONUM  EKKI  NEMA  Í  ÓTTALEGUM  AÐSTÆÐUM..
HIР ,, TRÚLEGA  ÓTRÚLEGA"  ER BETRI  KOSTUR EN  HIР ,, ÓTRÚLEGA  TRÚLEGA".
ALLA  ÆFINA  REYNUM  VIÐ AÐ LEYNA  MISTÖKUM OKKAR,  NEMA  LISTAMENNIRNIR   SEM  VELJA  ÚR  SÍNUM  OG  HALDA  SÝNINGAR..

AUÐMENN  VERÐA  ALDREI  SVO  RÍKIR  AР ÞEIR  ÓTTIST  EKKI  UM  AUÐÆFI  SÍN..

BRANDARAR

BETRI SAMVISKA.

Þau voru á leiðinni heim eftir dansleikinn. Kalli, ef þú leitar á mig, æpi ég.  Ha,ha, æptu bara. það er ekki nokkur sála í mílu fjarlægð. Nei´, ég veit það , en ég hef betri samvisku, ef ég veiti einhverja mótspyrnuCool

AÐ FARA NIÐUR.

- Læknir, ég vildi gjarnan biðja þig um að færa niður kynlöngunina hjá mér, sagði sjötugur karl sem var nýgiftur einni tvítugri . Færa niður?  Það var svei mér einkennileg bón.  ,, Ekki svo mjög . Sjáðu til..hún er öll í höfðinu á mér kynlöngunin og þessvegna villdi ég færa hana neðar, þar sem ég get haft meiri ánægju og gleði af henni!!!CoolTounge

LÉTTUR.

-Mig langar að vita eitthvað um framtíðina, sagði unga, feimna konan við spákonununa.  Látum okkur nú sjá . Maður mun koma inn í líf þitt fljótlega, mjög ungur maður.  Segðu mér  hvernig hann lítur út. ,, Það einast sem ég get séð , er að hann vegur aðeins 2,8 kg."Blush

HEYRT Á KVENNAKLÓINU:

Hvernig var hann sá sem þú fórst með heim í gærkvöldi? -Eins og fyrsti vetrarsnjórinn. Kalda,, týpan"?  Nei, hann ,, kom" óvænt og alltof fljóttTounge


JÓLASVEINA KVÆÐI..´"ÚTRÁSAR" JÓLASVEINARNIR...

jolasveinn_okuni_ingur Glitnisgaur kom fyrstur,
gráðugur í öll bréf.
Hann laumaðist í vasana
og lék með fólksins fé.

Hann vildi sjúga þjóðina,
-þá varð henni ekki um sel,
því greyið var sko afæta,
-það gekk nú ekki vel.

2.
santa_legs Björgúlfsaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
-Hann skreið úr skipi hafsins
og skaust í bankann inn.

Hann faldi sig í Rússlandi
og froðunni stal,
meðan bjórmeistarinn átti
við Yeltsín gamla tal.

3.
santa-claus Bjármann hét sá þriðji,
böðullinn sá.
Hann krækti sér í milljarða
þegar kostur var á.

Hann hljóp með þá til Noregs
en hirti ekki um sjóðina,
sem féllu hver af öðrum
við sjáum núna slóðina.

4.
santa_plane Sá fjórði, Bændasleikir,
var fjarskalega sljór.
Og ósköp varð hann leiður,
þegar bankadruslan fór.

Þá þaut hann eins og Welding
og þotuna greip,
og flaug með henni í London
því krónan var svo sleip.

5.
santa_biking Sá fimmti Smárasnefill,
var skrítið fjármagnsstrá.
-Þegar hinir fengu í nefið
hann barði dyrnar á.

Þeir ruku'upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pokanum
og fékk sér góðan verð.

santa_s_swat_team_393749 6.
Sá sjötti Sigjónárna,
var alveg dæmalaus.-
Hann framundan rústunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið vildi skýringar
á auralausum reikningum,
hann slunginn var að afsaka
og skildi ei neitt í hlutunum.

7.
Sjöundi var Heiðarmár,
-sá var sjaldan sýndur,
ef fólkið vildi tal af 'onum
hann var alltaf týndur.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó þjóðarskútan maraði
þá hálfu kafi í.

8.
Baugabur, sá áttundi,
var skelfilega þver.
Hann hluta keypt'af bönkunum
með hluta úr sjálfum sér.

Svo lánaði hann sér milljarða
og yfir öðrum gein,
uns stóð hann á blístri
og stundi og hrein.

9.
Níundi var Nógafaur,
næmur á fé og snar.
Hann hentist út um heiminn
og hluti keypti þar.

Á enskum bita sat hann
í símaleik
og át þar hluti drjúga,
enga Breta sveik.

10.
Tíundi var Skallakjaftur,
tungulipur mann,
sem hamaðist á landslýð
og æsti upp hann.

Ef vammlegt var hvergi
né ósiðlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

11.
Ellefti var Stjórnaskelfir
-aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hláleg
og heljarstór eyru og nef.

Ef fnyk af féhyggju
ekki hann fann,
þá léttur, eins og reykur,
lyktina upp spann.

12.
Sólráður, sá tólfti,
kunni að spinna vef.-
Hann þingmannasveitina
sveigði í kosningaþref.

Hann krækti sér í fylgi,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist enginn
akkurinn hans þá.

13.
Þrettándi var Kreppugeir,
-þá var komið kvöld,
alltaf kom hann síðastur
á bankahrunsöld.

Hann blekkti litlu börnin sín,
sem mótmæltu prúð og fín,
og trítluðu um bæinn
með spónaspjöldin sín.


HEILRÆÐI FYRIR 12 DES...ÞAÐ ER LÍKA FULLT TUNGL...HOUOULLLL

Heilræði fyrir 12 des...

greenheart Hefur þú nokkurn tíma óskað þess að aðrir í fjölskyldunni vissu hversu vænnt þér þykir um þá og hvað þeir eru þér mikils virði?

Farðu og segðu þeim það.

Jamm ..svo er karlinn hann Máni gamli á fylleríi í dag..þannig að það verða pottþétt ýmsar uppákomur og mikið um að vera ekki síst föstudagskvöld og aðfararnótt laugardags...Þetta ber öllum saman um sem vinna á skemmtistöðum og leigubílstjórum... Ég kannast sjálf við það frá því ég vann á skemmtistað..púff...þegar maður sá Mána gamla glotta blindfullan við manni...stóð heima, nóg að gera með allskonar vesen, vol og væl, grenjur, slagsmál og þeim dúrnum..

Þannig...eins gott fyrir okkur krabbadýrin (er með sól í krabba)  og þá sem eru rísandi krabbi, (framkoma og persónulegur stíll)  með tungl í krabba, (hefur með tilfinningar, minningar, fortíð, bernska), kanski líka með merkúr í krabba eins og ég er  (stjórnar tjáskiftum..)að fara sérstaklega varlega með talandann.....

En hér er skemmtileg og góð líka frí horoscope síða

http://www.nude-horoscope.com/

Eigið svo öll góða helgi..


Pólitikín sú lóðatík og umhverfi hennar ekkert breyst síðan 2005 samkvæmt þessu...

Þá hefur enn eitt árið runnið sitt skeið..

Þá er víst nýtt ár gengið í garð enn á ný.. Ég var að lesa yfir það sem ég hef skrifað  annarsstaðar frá því í lok des 2005 um það sem snýr að blessaðri politíkinni..þeirri lóðatík.. Merkilegt hvað ekkert hefur breyst þar á einu ári..Það er svo sem gott að geta gengið að sumum hlutum vísum..ár eftir ár.
Þetta skrifaði ég 30 des.2005..sé ekki betur en að allt sé eins núna í lok ársins 2006.. Eini munurinn er jú bara ártalið.
Læt þessi skrif mín fylgja hér.
Þá fer þessu blessaða ári (2005) senn að ljúka..

Misjafnt hefur sennilega árið verið hjá okkur öllum. Sumum gott ár öðrum því miður ekki. En svona er þetta jú bara.. Við endum flest öll með þá ósk í hjarta að nýja árið verði betra en það sem er að ljúka..

En ég verð að viðurkenna að politískt séð þá finnst mér nú ansi mikið hafa borið á misræmi í loforðum og efndum hjá ráðamönnum þjóðarinnar og ansi mikill munur á því hvað þeim finnst eðlilegt að hinn almenni íslendingur eigi að vera með í laun miðað við þá sjálfa..
Meðan stór hópur fólks á að sætta sig við um 100.000kr á mán þá finnst þeim sjálfum ekkert athugavert við að vera með á bilinu 500.000 og ríflega miljón á mánuði í laun.......nú eða x millur...hvað er það á milli "vina"...

Þannig að ég reikna með að margir endi ekki árið með neitt alltof fallegum hugsunum til þessara aðila sem sjá ekkert athugavert við það að fá hátt í mánaðar laun, það sem eru árstekjur öryrkja/ellilífeyrisþega og annarra minnihlutahópa.
Það eru greinilega orðnir miðað við þennan mikla launamun 2 þjóðfélagshópar í landinu, en það er hástétt og lágstétt.
Það er ekki lengur orðið til millistétt en það var það jú einu sinni...
Svo eiga þessir aðilar enn lengri frí en hinn almenni íslendingur allt út frá gömlum lögum sem voru jú barn síns tíma, þ.e. á meðan að meiri hluti alþingismanna voru bændur..
Þeir þurftu jú að komast í sauðburðinn á vorin og þinglok miðuð út frá því.
Upphaf þings á haustinu tóku mið af því að þeir þyrftu nú að klára að smala og slátra áður en þing var sett..
Svo miðast jú jólafríið við fengitíma blessaðar sauðkindarinnar.. Það þarf jú að "hleypa" til svo að fæðist fín og flott lömb.. Þannig að jólafrí alþingismanna er jú í reynd "fengtíma" frí.
Hverju skyldu alþingismenn vera að "hleypa til" í dag?

En væri nú ekki eðlilegt að henda þessum lögum út?
Ekki síst vegna þess að það er eiginlega bæði búið að útrýma bændum og rollum? Það finnst mér allavega...
Þetta finnst mér að eigi að vera ein af lagabreytingum á nýju ári.
Það er að alþingismenn sitji jafn lengi á þingi og börnin okkar á skólabekk og þeir komi saman aftur á sama tíma og skólarnir byrja og að jóla og páskafrí hjá þeim séu jafn "stutt" og er hjá börnunum okkar..
Finnst það helvíti hart að þeir ætlast til af yngstu kynslóð landsins meira en af sjálfum sér ..
Svo þegar þetta lið kemur saman núna eftir jólafrí þá fer mestur tíminn fram að kosningum að lofa gjörðir stjórnarinnar frá síðustu kosningum og rakka niður hina...
Komið með nýja kosninga/loforða svika þulu, sem við jú flest gleypum allt hrátt..enn á ný..
Minni okkar er ekki lengra en þessi 4 ár..öll gömlu /sömu loforðin gleypa flestir hrátt...aftur og aftur...
En ég verð að segja að Davíð var klókur..hann kann sko á minni eða óminni okkar íslendinga.. Hann hafði vit á því að labba út akkúrat núna og rétta Halldóri stýrið á þjóðarskútunni...
Þannig að við munum bara eftir Halldóri við stýrið á skútunni þegar hún sökk...
Fyrsti stýrimaður býður jú yfirleitt eftir því að fá tækifæri til að verða skipstjóri á skútunni..
En það er svolítið ljótt af skipstjóranum að rétta honum stýrið er skútan er við að steyta á skeri og er að stranda...
En það getur enginn vænt Davíð um heimsku...margt annað en ekki það...
þannig að ég tel að sjálfstæðisflokkurinn eigi þegar upp er staðið eftir að græða á útgöngu Davíðs..en framsókn tapa..því langtíma minni fólks er jú svo lélegt..
Það mun bara muna eftir Halldóri í vor þegar að verður kosið...
Tek það fram að ég er hvorugum þessum flokkum hlynnt...Finnst venjulega sama skítafýlan að báðum...

Politískt séð er ég ekki ánægð með árið 2005..en þetta lið hefur jú að vísu staðið sig nokkuð vel í einu..en það er að svíkja lítilmagnann og traðaka á honum á skítugum skónum alveg upp í kok..
Réttara nota þann hóp sem fótaþurrku...Segi bara svei attan...Devil

Þannig að ég er reið fyrir hönd þeirra sem minna mega sín hér á landi..
Það þýðir ekki fyrir þetta lið að koma með einhverjar fallegar innihaldslausar lofrullur fyrir mig núna við lok þessa árs.
Það væri held ég mál til komið að þessir aðilar segi minna og standi við öll fallegu loforðin um betri tíð og blóm í haga handa lítilmagnanum, sem þeir telja okkur trú um að sé að renna upp.. jórtra á sömu tuggunni ár eftir ár og æla upp aftur sem belja í fjjósi...

Alltaf 1. jan hvert ár...sama gamla þulan..því miður gleypa flestir það hrátt.. aftur og aftur..
Agný.
sem átti ágætt ár en ég ætla ekki að þakka ríkisstjórninni það..
Læt hér fylgja vísu sem ég gerði fyrir um 20 árum síðan..greinilega lítið breyst síðan...
Stjórnin segir, allt þeir geri gott,
skattar, tollar og gjöld.
Viskunni ei það beri vott,
vandamálin sem hún er völd.

Næsta síða »

Nota bene

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BEAR MARK OF THE BEAST!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... ingaorama@gmail.com   

CHEMTRAILS OR?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

"Better to know little about a lot..than much about one thing" http://alvaran.com/forum/ http://ingaorama.vodspot.com.vodspot.tv/ http://vodpod.com/ingaorama http://www.twitter/INGAORAMA

Nýjustu myndir

  • ...100_2216-3
  • ...umama_urinn
  • ...cine_937812
  • ...1_28vaccine
  • ...kraine_dees

Nýjustu myndböndin

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

How Healing Becomes A Crime 1of 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband