Leita í fréttum mbl.is
Embla

Færsluflokkur: Menntun og skóli

SKÓLAKERFIÐ EINS OG AGNÝ VILL HAFA ÞAÐ.

Þetta hér skrifaði ég fyrir rúmum 3 árum síðan.....Passar það ekki nokkuð vel við ástandið í dag? Þar sem við erum skylduð í skóla í 10 ár af ríkinu..., þá á RÍKIÐ( við) AÐ BORGA GRUNNSKÓLANN!Mar 18 2005, 3:44 Í sambandi við grunnskóla sem allir eru skyldaðir til að vera í af ríkinu, þó svo sumir hætti fyrr en honum er lokið, oft vegna eineltis.

Það sem mér finnst rangt er þetta:
Það átti ALDREI að setja grunnskólana á sveitarfélögin, þar sem einstaklingurinn er SKYLDAÐUR af ríkinu
 
til að vera í grunnskóla í 10ár, þá á ríkið sem er náttúrulega við öll sem búum hér á landi þó svo oft látum við sem ríkið sé eitthvað batterí sem reki sig sjálft að standa straum af þeim kostnaði , öll viljum við jú að börnin okkar mennti sig eða eins og sagt var í gamla daga "verði að manni."
Ef við viljum á einhvern hátt hafa jafnræði og jafnvægi þá er menntun á jafnréttisgrundvelli óháð búsetu og mannfægð eða vöntun á góðum kennurum, ekki tækið til þess að svo megi verða.


Annað sem mér finnst að mætti alveg skoða og ég tel að þegar upp verði staðið myndi skila þjóðarbúinu meiri arði en það er af þessum forsendum sem ég gef hér:
Það er mikið atvinnuleysi, ungt fólk fær ekki vinnu , það á ekki/hefur ekki réttinda til atvinnuleysisbóta ,hefur heldur ekki efni á að fara í skóla þó að vilji væri fyrir hendi.

Hvað haldið þið að þetta fólk komi til með að leiðast út í eða lenda í.?
Kanski þetta margumrædda vændi ?
Dópneysla /sala.? Rán og innbrot.?
 
ER það þetta sem við viljum sjá?

Því hvar á liðið að fá peninga ef engin er vinnan og ekki hægt að fá bætur nema frá féló.
Það sem mér persónulega finndist réttara að gera,  því ég tel að það kæmi betur út fyrir þjóðfélagið í heild þegar upp yrði staðið er þetta:

Að ríkið myndi borga einstaklingum fyrir að vera í skóla eftir að grunnskólanámi lýkur.
Það myndi þýða það að þegar atvinnuástand batnar þá væru til einstaklingar sem eru menntaðir
 
en ekki búnir að mæla göturnar og í ýmsu misjöfnu jafnt konur sem karlar.
Það yrði að mínu mati ódýrara fyrir ríkið þegar til lengri tím er litið.
Þessir einstaklingar myndu síður leiðast út í það sem ég taldi upp fyrr og þetta fólk yrði þjóðfélasvænni þegn heldur en sá sem hvorki hefur haft menntun eða vinnu.

Það nefnilega kostar ekkert smá fyrir ríkið ef að eru sífelld innbrot, sem skapar þörf á stærri fangelsum, fleiri meðferðarheimili fyrir þá sem lenda í eiturlyfjaneyslu, meiri félagslegan og fjárhagslegan stuðning fyrir þá sem leiðast út í vændi og meiri lyfja og lækniskostnaður myndi örrugglega verða líka.

Þannig að ég tel að það myndi spara stórlega til lengri tíma litið og við eiga til fólk sem gæti gengið inn á vinnumarkaðinn þegar atvinnuástand yrði gott, þegar það kæmi þetta virkilega svokallaða góðæri.
 
Þeir sem eru búnir að vera án atvinnu í langan tíma, hafa jafnvel aldrei fengið vinnu eftir að grunnskóla
  er lokið, eru ekki einstaklingar sem vinnuveitendur vilja fá í vinnu því miður.
Þá myndu atvinnurekendur frekar leita eftir erlendu vinnuafli.( þekki það persónuleg þar sem ég hef átt fyrirtæki með mínum x).

Ég veit ekki betur en að i Danmörk sé það þannig að ríkið borgi einstaklingum " laun" á meðan þeir eru í námi eftir grunnskólanámi er lokið.
 

Þetta tel ég að sé það sem við Íslendingar ættum að taka upp eins og Danir frændur okkar.
En þetta er jú bara mín hugmynd um hvernig þjóðfélagið megi breytast, til hins betra að mínu mati þegar á heildina er litið.
Kveðja Agný.
Oct 18 2003, 20:30

Kæri .....
Það sem ég átti við með því að ungmenni fengju borgað fyrir að vera í skóla, þá átti ég EKKI við til háskólanáms.
Heldur þeirra sem fara í fjölbraut, verkmenntaskóla eða menntaskóla. Það yrði síður til að þessir einstaklingar tækju sér pásu frá námi sem oft vill verða of löng eða það löng að viðkomandi hefur sig ekki upp í það að fara í nám síðar meir. Þetta myndi líka skapa meira jafnræði og jafnvægi milli einstaklinga ef þessi háttur væri hafður.
Ég gaf líka þær forsendur að væri mikið atvinnuleysi að þá myndi þessi aðferð skila betri þjóðfélagsþegnum út í þjóðfélagið síðar, heldur en ef að viðkomandi einstaklingar mældu göturnar og lentu í hinu eða þessu.

Þannig fólk vilja engir atvinnurekendur fá og atvinnurekendur vilja heldur ekki einstaklinga sem eru búnir að vera á atvinnuleysisbótum lengi. Þetta fólk gengur ekki fyrir í vinnu, ég hef verið í fyrirtækjarekstri og þó að vantaði mannskap þá leitar þú eftir fólki annars staðar fyrst áður en þú fórst að skoða þá sem eru skráðir á atvinnuleysisskrá. Þannig er bara raunveruleikinn í þessu!!!

Það eru nú ansi margir eilífaðarstúdentar í háskólum bæði hér og annars staðar og tel ég að ef að þeir fengu laun á meðan sé ekki rétt. Sumir myndu líta á það sem ágæta vinnu að vera endalaust í skóla og falla kanski
 
reglulega í þessu eða hinu til að vera " áfram á launum " en stúdentinn og verkmenntabrautir eru síður til þess fallnar að ofnota það.

Annað það eru ansi margir sem hafa ekkert það góð fjárráð þó svo kanski þú þekkir það ekki, 
og eiga kanski mörg börn að það er hægra sagt en gert að kosta ungmennin til náms og ekki er neitt auðvelt í dag að fá vinnu þennan stutta tíma sem er núna frá að skóla lýkur að vori og byrjar svo aftur um 25 ágúst.

Þó að einstaklingurinn fái vinnu þá er það ekki mikið sem viðkomandi fær í vasann frá miðjum júni til miðs ágústs.  Yfirleitt líka lélega launað og langlægstu taxtarnir og svo ef að er atvinnuleysi þá getur þú bara gleymt því að þú fáir vinnu því að það eru ekki óharðnaðir unglingar sem vinnuveitendur vilja þá fá , yfirleitt hæfari einstaklingum þannig séð, úr að velja þegar svoleiðis ástand er. Hver heldur þú annars að sé ástæðan fyrir öllum þessum erlendu aðilum í fiskivinnu hér á landi .....? Fróðlegt væri að lesa um þína skoðun á því.

En er samt nokkuð viss að mínar og þínar skoðanir eru svart og hvitt í þeim efnum sem öðrum ....  

Kveðja Agný. 

Kæri ........
Í sambandi við fiskivinnuna þá veit ég það frá íslendingum sem ég þekki í fiskivinnu, nánar til tekið suður með sjó eins og sagt er
  að fiskverkunareigendur og útgerðir vilja ekki íslendinga í vinnuna í dag á þeirri forsendu að þeir eru að borga erlendu aðilunum um það bil helmingi lægra á timann en íslendingurinn á rétt á.
Þannig að það kemur víst fyrir að íslendingum er oft vísað frá en á sama tíma sóttur til útlanda vinnukraftur.
En þetta er fínt , svo skeður það sama og skeði í danmörk um "74-75 ég bjó þá úti, en það er að þá kom upp atvinnuleysi
en ekki mikið og þá heyrðist sko í Dönunum þetta " forbannede fremmede arbejdere kom og stjal vores arbejde." = ,,Helvítis útlendingarnir komu og stálu vinnunni okkar....


Málið var bara það að vinnan sem útlendingarnir voru í var drullu versksmiðjuvinna sem Danirnir vildu ekki sjá og í raun nákvæmlega það sama og er hér nú í sambandi við fiskivinnuna.
En það eru í raun bæði Dönum og okkur Íslendingum sjálfum um að kenna að ástandið varð og er svona.
En við erum bara flest okkar alltof góð í því að ásaka og skella skuldinni á annað eða annað.
En í sambandi við þessa konukind sem þú vísar í þarna í restina, þá myndi ég ekki telja hana með fulle fem
  ekki fjóra einu sinni, það er nú hægt að vera heimskur en SVONA forheimskaður..... nei fjárinn að ég trúi því.
Kveðja Agný.

 Kæri/kæra .........
Það sem þú segir hér, er einmitt ástæðan fyrir því að ég vil að einstaklingar fái " laun " á meðan skólanámi stendur eftir að grunnskólanámi líkur.

Til að gefa þessum aðilum tækifæri til að halda áfram námi. Annað sem myndi ske þá líka að það væru fleiri störf í boði fyrir aðra aldurshópa á móti þeim sem héldu áfram námi í staðinn fyrir að fara út á vinnumarkað þarna strax að grunnskóla loknum. En hvort að öllum fyndist þessi eða hin störf nógu góð er svo önnur saga.

Ég er bara svo gamaldags að ég tel að vera atvinnulaus til lengri eða skemmri tíma sé bæði mannskemmandi  og sálardrepandi. Margir hafa t.d. framið sjálfsmorð vegna þessa. Heilsu almennt hrakar sem leiðir til lyfjagjafasérstaklega þá þunglyndislyfja.

Þannig að ég vísa aftur í það sem ég sagði í byrjun greinarinnar,en það er að til lengri tíma litið ef horft yrði á alla kostnaðarliði / útgjöld fyrir ríkið sem koma af atvinnuleysi, heilsuleysi og sjálfsmorðum því að þetta hefur aukin útgjöld fyrir aðstendendur allra aðila sm tengjast þeim sem lenda í þessu.
Á móti segi ég að til lengri tíma litið kæmi betur út fyrir alla og ríkið ( sem er við!!!!) ef farið yrði að borga nemendum " laun " það er að segja tilvonandi nemendum í fjölbraut, verkmenntaskóla og menntaskóla að þá myndi hinn útgjaldaliðurinn lækka og ég segi aftur....  við myndum fá einstaklinga út í þjóðfélagið eftir að námi í framhaldsskóla lýkur sem síður hefðu leiðst út í óreglu og eitulyfjaneyslu og annað miður gott. Sem sé þegna sem væru færari að koma út á vinnumarkaðinn en þeir sem hefðu mælt göturnar allan tímann.....Báðir þessir kostir kosta okkur skattborgarana x mikið....en í hvorn hópinn viljum við að aurarnir okkar fari?

En það er alltaf meiri hætta á að einstaklingar leiðist út í þetta sem ég taldi upp,  ef viðkomandi hefur hvorki vinnu eða er í námi. Það þurfa allir að fá útrás fyrir sína orku sem öllu jöfnu fer í nám og vinnu,  en ef þú hefur hvorugt,  þá fer hún bara í eitthvað miður gott.
Má kanski líkja þessu við þetta " betra er slæm athygli en engin".
Kveðja Agný.
 Kæri ..........
Ég lenti í því þegar ég er tæplega tvítug og að koma fyrst út á vinnumarkað að vinna hjá fyrtæki sem var stórt þar sem ég bjó. Málið er að það svindlaði verulega á launum síns starfsfólks og ef að einhver sagði eitthvað við eigendurna, þá var svarið á þá leið að viðkomandi gæti bara farið, það væri nóg um aðra sem vildu fá vinnu. Það var mikið af konum sem áttu börn sem unnu þarna og þær þorðu ekkert að gera eftir þessi svör.

Svo fór ég í félagið sem við vorum í og kvartaði undan röngum launatöxtum og þá var mér sagt að þetta færi í " skúffuna" og ég spyr hvað væri verið að meina, en var þá sagt að það væri þangað sem kvartanir á hendur þessu fyrirtæki færu.
Þannig að stór fyrirtæki stjórna ansi miklu í minni bæjarfélögum og fólk þorir oft ekki að rísa upp út af því. En þetta leiðréttist ekki fyrr en konurnar fóru í vinnustopp fáum árum seinna, en ég efast um að þær hafi fengið leiðréttingu " aftur í tímann".En við höfðum launa leiðréttingu fram.....Ég var ekki í fullri vinnu þar þá...það var bara aukavinnan mín..
Kveðja Agný.
ly

fjaframleiðen Stuðningshópar og félög fyrir aðstandendur ADHD,


MYNDIR FRÁ OPINBERUN LISTAHÁSKÓLANS OG AF MIS ÞEKKTUM EINSTAKLINGUM.

100_9078 Ég var svo "heppin" að vera viðstödd þegar var verið að "opinbera" það hvernig hinn svokallaði Listaháskóli á að líta út..svona allavega hannaður í tölvu ...verið að veita viðurkenningar og verðlaun fyrir bestu hönnunina á skólanum..

Náði slatta af myndum af mis frægum einstaklingum... og deili þeim hér með ykkur.....

Málið er að ég er að vinna (Höfuðbeina 100_9082 og spjaldhryggsjöfnun..) niður á Laugavegi 43  (Verslunin Vínberið )en það er víst á þessum stað sem Listaháskólanum er ætlað að vera ..... 100_9090 100_9089

 

 

Skilst að eigi að rífa Laugaveg 43, 41 a og b og jafnvel fleiri hús þarna...List þarf víst mikið pláss..

  100_9091 100_9093 100_9096 100_9085 100_9098

  100_9097 þetta hljómaði allt svo sem voða vel það sem þessi skóli á að standa fyrir ..svo á eftir a 100_9087 ð koma í ljós þær efndir sem og með ýmis loforð fyrir kosningar... 100_9101

  100_9102 En hversvegna er verið að mála og flikka upp á þessi hús þarna við Laugaveginn sem á svo að rífa eftir ca 1-3 ár...?

En hvað með að staðsetja skólann í Borgarnesi?

Það er jú í gegnum Borgarnes sem allir þurfa að fara sem ætla sér annaðhvort nyðri leiðina til höfuðborgarinnar sama hvaðan þeir koma ef þeim þóknast ekki að sitja í maskínu ofar jörðu... Nú eða aðrir sem ætla sér norður, vestur eða austur á land..gegnum Borgarnesið blessaða þurfa þeir að fara...Like it or not...

Þannig...Listaháskólann í Borgarnesið!!! Ekki Laugaveginn...

Hvar eiga svo bílastæðin að vera fyrir tilvonandi nemendur? Eða á að fara að hafa stræto ferðir fríar? Je jú ræt....Það eru sko næg bílastæða vandræði fyrir...En kanski bensínverðið verði orðið svo hátt þegar að skólinn kemmst á laggirnar að allir fara sínar ferðir á tveim janfljótum/lötum..nú eða maður fer a nota þarfasta þjón Íslands almennt aftur....

Nei svona án gríns....þá hættir okkur íslendingum mjög oft að gleyma þessu máltæki... " Í upphafi skyldi endirinn skoða"....

100_9104 100_9105 100_9107 100_9109

100_9115 100_9118 100_9111

Læt þetta duga núna en set restina inn á Myndaalbúmið....


Nota bene

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BEAR MARK OF THE BEAST!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... ingaorama@gmail.com   

CHEMTRAILS OR?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

"Better to know little about a lot..than much about one thing" http://alvaran.com/forum/ http://ingaorama.vodspot.com.vodspot.tv/ http://vodpod.com/ingaorama http://www.twitter/INGAORAMA

Nýjustu myndir

  • ...100_2216-3
  • ...umama_urinn
  • ...cine_937812
  • ...1_28vaccine
  • ...kraine_dees

Nýjustu myndböndin

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

How Healing Becomes A Crime 1of 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband